Ragnheiður

Hvað er annað en lífið...

12.12.2008 20:02:44 / ragnheidur

HEIM jess

Jæja góða fólk það er komið að því.

Ég kem heim á MORGUN 8)

Í gær var jólapartý í skólanum mínum. Allan gærdaginn hafði kingt niður snjó og það var svo jóló fyrir jólapartýið. Mikið var fjörið í partýinu og mikið var um að drykkir rynnu niður hálsa fólksins sem prýddi partýið. Gleði gleði. Jább svo það var þynkudagur í dag og það eina sem við áttum eftir að setja ofna í okkur, matarkyns, voru hamborgarar og 2 egg. Svo það eina sem ég er búin að borða í dag eru tveir hamborgarar annar með eggi og kók og dús og smá kartöflur, afgangur ;)

Alltaf gaman í Norge.
Við erum næstum tilbúin, núna á eftir ætla ég að leggja lokahönd á að skipuleggja ferðalagið og svo að fara að sofa. Við þurfum nefnilega að vakna kl 5 ef ekki fyrr, segjum hálf 5.


Gleði gleði og við sjáumst öll hress á næstu dögum, jiiiiii en spennó:d




» 2 hafa sagt sína skoðun

09.12.2008 09:29:25 / ragnheidur

Vááá KÚL

Ég vaknaði í morgun og úti er allt í frosti og þoka þannig að ég sá ekki yfir ánna, sem er klikkað því bakkinn hinum megin er klikkað nálægt.8| Svo já hér er kalt og þoka hehe:p

En á sunnudaginn var söngdagur, eða alla helgina var ég á söngworkshopi. Úps búin að segja þetta kannski. Jæja þá segi ég bara aftur.
Ég var á sunnudaginn að syngja fyrir framan allan bekkinn (3 og 2 ár) Piraet Jenny úr Túskildings óperunni alein. Það var rosalega gaman og stressandi. Ég dó næstum fyrst eða kúkaði á mig er kannski betra orðbragð. En í seinna skiptið (s.s. annað skiptið sem ég söng lagið) þá gerði ég það klikkað vel. Söngkennarinn segir að ég sé með stóra rödd og það sé gott. Núna þarf ég að vinna í því að ná smáatriðum og kunna að minka röddina þegar ég þarf :d Gaman gaman, komin söngkona í familíuna 8)

En í dag er ekkert að gerast, fer í viðtal við kennaranna kl 3 og á meðan ætla ég að próna aðeins og baka brauð og elda fiskisúpu í hádeginu. Nammm

Í gær fór ég í síðasta skiptið í H&M keypti mér nærföt og sokka og smá jólagjöf, ætlaði svo að fá tax free og var með allar kvittanirnar síðan í haust, en NEI ekki hægt að fá tax free hér sagði stelpan við afgreiðsluborðið. Klikkað ég veit:(

En núna eru 4 dagar í að gleðin byrji svo undirbúið ykkur vel og sofið vel næstu daga  því ég er úthvíld og get vart beðið eftir að stíga á klakann (eins og sumir orða það)

8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.12.2008 20:00:12 / ragnheidur

Það fer að líða að þessu

Ég er búin að vera í skólanum alla vikuna. Við erum búin að vera í söng workshopi með söng kennaranum okkar. Í dag sungum við eitt lag hvert fyrir hvort annað og ég næstum pissaði á mig af stressi en í seinna skiptið sem ég söng það var ég miklu betri og kom laginu bara vel frá mér.

Jæja það er s.s 6 dagar í að maður heimsækir ættarjörðina.
Ég er ýkt spennt, en ég mun sakna þess að vera hér. Loksins þegar ég er að komast inn í allt þarf ég að fara. En svona er lífið.

Ég er að fara í partý núna á eftir, afmælispartý með Pyslum og kökum og auðvitað bjór;)
Svo er jólapartý á fimmtudag það verður bara gleði og svo heim.

Það er ekki mikið eftir áður en þið vitið af þá er maður komin aftur.

Jæja eins og þið sjáið hef ég ekki ýkja mikið að segja, hér er bara kalt og ég held áfram að telja niður daganna á dagatalakertinu mínu.

Sáumst:d


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.12.2008 18:51:42 / ragnheidur

Ferðalag

Já nú fer að líða að því að maður komi heim. 10 dagar og ég held áfram að brenna kertið samviskusamlega og er að brenna 14 í dag.

Við Snæbjörn fórum í ferðalag um helgina, og hér kemur sagan.

Lögðum af stað frá Fredrikstad kl hálf 9 á fimmtudagskvöldi. Eyddum einum klukkutíma í Osló því ég hef varla séð borgina almennilega. Svo var hoppað um borð í næturlestina sem tekur mann til Bergen á einni nóttu og ruggar manni til svefns á meðan. Þetta var allt frekar skemmtilegt og ég bakaði bollur áður en við lögðum af stað af heiman, vegna óþolsins míns. Við sváfum ágætlega í lestinni, Snæbjörn svaf vel ég bara sæmilega svo það er ágætt. Þegar við komum í Bergen var enn myrkur og það fór ekki að birta fyrr en 2 tímum eftir að við lentum í Bergen. Hehe já við lentum þar kl 7. En á meðan settumst við niður á lestarstöðinni og borðuðum bollur í morgunmat og kaffi. Snæbjörn fékk sér vöflu en ég gat það auðvitað ekki. En svo fórum við að leita af staðnum þar sem við myndum fara um borð í bátinn sem átti að fytja okkur til Askvoll en þaðan tókum við annan bát sem flutti okkur á Værlanded og þangað kom vínkona mín að sækja okkur og við keyrðum yfir á Bulanded þar sem hún býr.
En alla vega Bergen er við fyrstu sýn: Lítil, krúttleg, falleg, búsetuleg og spes. Við kunnum miðbæinn utan af á því að eyða degi þar, en við tókum bátinn kl 5 um daginn. Við löbbuðum um til 10, því ekkert opnaði fyrr en 11 (jú kaffihús voru opin). Ég tók fullt af myndum af öllu sem mér þótti merkilegt. Svo settumst við niður á kaffihús á göngugötunni og ég fór að skipta um filmu og hún slitnaði svo myndirnar eyðilögðust. En svo fórum við í Museumið og svo fórum við í Kebab leiðangur sem tók okkur 2 tíma en við þekkjum borgina mikið betur núna. Loks fundum við kebab og átum hann upp til agna enda glor soltin. Mikið meir gerðum við ekki þennan dag.
Næsta dag fórum við í búðina og kaffihúsið í Búlandi. Það er bara siður að fara þangað á laugardögum því þar hittist fólk verslar, spjallar, fær sér kaffi og köku. Jább einskonar félagsmiðstöð í 500 manna þorpi (sem er samt mjög strálbýlt). Seinna um daginn þegar við vorum búin að borða (og þá uppgötvaði ég að ég get borðað maiones vívííí) fórum við í veiðitúr með tengdarföður vínkonu minnar og við dorguðum fisk í soðið. Mjög góður fiskur en mikið af beinum í honum svo kisi fékk hann, við smökkuðm samt veiðina okkar. Mikið stuð. Svo var auðvitað farið í partý. Gaman gaman.
Á sunnudeginum var afmælið hans Snæbjarnar og ég gaf honum 4 gjafir í morgunsárið. Þann dag var farið í langan göngutúr á klikkað fallegt svæði. Svo elduðum við steik í kvöldmat og spiluðum jólalög og bökuðum franska súkkulaði köku í eftirrétt með jurtafitu í stað smjörs, MJÖG gott.
Svo fórum við heim á mánudeginum. Lögðum af stað kl 8 um morguninn og komum heim 2 aðfaranótt þriðjudags. Vorum aftur í Bergen og fórum upp á eitt fjallið sem borgin er byggð upp í (það er mjög stórt) þá sáum við að borgin er mjög strálbýl og stór, mikið stærri en okkur grunaði. Í raun er miðbærinn pinkulítill miðað við stærð borgarinnar sjáfrar. Lestina til Osló tókum við kl 4 og tók 6 og háfan tíma svo biðum við í Osló í 2 tíma eftir lestinni heim. Sú lestar ferð tók 1 og hálfan. Svo þreytt og lúin lögðumst við í bælið og sváfum vel frammeftir degi.

Jæja meira blogg seinna þarf að elda mat ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.11.2008 22:57:17 / ragnheidur

Góða nótt.

Lífið heldur áfram þótt ég skrifi ekki reglulega.

Skólinn er alveg á fullu þar sem þetta er næst síðasta vikan svo er ein vika í mat og tal með kennurum (sem er rólegt og þægilegt ;))
Kertið brennur og tala nr 7 á kertinu er horfin eins og planið var :d
Það er nú ekkert mikið að frétta héðan. Er bara nervös að krónan fari í gang aftur og svo erum við er fara í ferðalag á morgun.

Ferðalagið:
Erum að fara með næturlest til Bergen. Þar eyðum við megnið af deginum, förum svo um borð í ferju um 5 leitið út á litla eyju (það er nóg af þeim þar) þar sem Hugrún vínkona mín býr. Ég veit eiginlega ekkert meir og ég hlakka mikið til. Svo á hann Snæbjörn afmæli um helgina það verður spennó. 8) Ég segi ykkur frá því öllu seinna, hann gæti skoðað bloggið áður en við förum og þá veit hann allt. Svo Usssssssss:!:.

Ég er bara mjög þreytt og get ekki beðið eftir að fara að sofa svo ég held að ég láti þetta duga í bili og sendi músarkveðjur og knús heim 17. dagar.


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.11.2008 12:37:31 / ragnheidur

Einn fokking mánuður

Jæja Ladies and gentlemen, boys and girls.

Einn mánuður þangað til aðalgellan kemur til Íslands.

Byrjið að telja niður og það strax.

Þið getið til dæmis keypt jóladagatalakerti og byrjað að brenna 20. nóveber sem 1 daginn á kertinu.

Eða keypt súkkulaði dagatal og opnað 1. á 20. nóv.

Ég hlakka mikið til og er að pæla að kaupa mér eitt stykki jóladagatal :haha:


Sjáumst eftir mánuð elskur



» 4 hafa sagt sína skoðun

10.11.2008 12:35:30 / ragnheidur

Neibb

Fórum í verslunarferð með skipinu til Svíþjóðar og vesluðum svo mikið að við gátum varla borið það heim. Ferðin var samt mjög notaleg.
Vesluðum bjór og rauðvín, héldum svo partý í tilefni þess að eiga smá til að dreypa á í partýi ;)

Þynnyldi sváfu til 2 daginn eftir og þrifu húsið hátt og lágt og fengu sér hammara í morgunmat ;)

Svo hefur bara ekkert gerst hér í Noregi. Alltaf mjög rólegt eða nei það var nú ekki í síðustu viku. En helgarnar eru oft svo rólegar. Sem er mjög gott.

Einn mánuður og tveir dagar þangað til við komum heim :haha: Gleði gleði. 8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.11.2008 19:55:52 / ragnheidur

Löng vika liðin

Þessi vika hefur verið alger geðveiki ef ég má taka svo til orða. Við 3 árið (bæði leikarar og leikmyndahönnuðir) vorum með sýningu á Podium er það kallað. Lítið leikhús eða hús sem leiklist og gjörningar eru stundaðir í. Staðsett í Osló (frekar töff húsnæði) og sýningin okkar var í gærkvöldi, ásamt nokkrum verulega ódýrum bjórum ;)Svo við erum búin að vera að vinna fram eftir kvöldi til að ná að gera góða sýningu. Sýningin gekk vel og núna er bara að halda áfram að vinna hana því það eru sýningar í næstu viku hér í Fredrikstað.
Vá það var svo mikil tilbreyting að fara frá Fredrikstad og í menningu hehe:haha:. Ég skemmti mér alla vega konunglega og Snæbjörn líka. Svo ég er algerlega dauð því við tókum lestina heim um 12 í gær og komum heim kl hálf 2 í nótt svo þurfti ég að vakna kl 8 til að mæta í kórtíma því það voru kórtónleikar í dag á opnum degi skólans.
Á morgun ætlum við Snæbjörn að gera okkur glaðan dag og fara með Sagasund yfir til Stomstad í Svíþjóð og vesla í matinn og bæta á vínskápinn (sem er tómur, já ég veit það er sorglegt :( )Tekur 2 tíma að sigla með skipinu aðra leið og skipið er við höfn í Stromstad í 2 tíma svo beisiklí fer allur dagurinn í innkaup og skemmtisiglingu (ódýran bjór því allt er taxfree á skipinu, vííííííí).
En já í dag á hann elskulegi pabbi minn afmæli og í tilefni þess er ég að hlusta á diskinn úr myndinni um Jhonny Cash, bara fyrir þig pabbi 8) Til hamingju með næstum hálfraraldar afmælið, tíhíhíhí :lol:. Ég man þegar þú varst 30 ára. Það var svakapartý heima og við Steinunn vorum sendar í pössun (ég man ekki hvert, sorry ef sú/sá sem passaði okkur er að lesa) og man eftir því að hafa sagt: Það má ekki reykja inni í herberginu mínu og ég kom heim og hljóp inn í herbergi og það var sígarettu reykur þar og ég varð klikkað fúl. :s Gleði gleði. :haha: Gamlir góðir tímar.

Það fer að líða að því að maður komi aftur heim á klakann eða frekar í pollinn :haha: svo verið viðbúin því og byrjið að undirbúa ykkur andlega og líkamlega því ef þú heldur að það sé stuð í pollinum núna þá skjátlast þér hræðilega mikið, stuðið byrjar þegar ég kem heim bíddu bara 8)

Öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir. ;):!::p:s:haha::haha::haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.11.2008 16:46:11 / ragnheidur

Gerast?

Veturinn er komin, hann kom í gær. Eiginlega í gær kveldi. Það er búið að vera kalt alla vikuna en þá er ég að tala um 9° kalt. Núna er komið frost. Ég býð bara eftir snjónum.
Ég fór til Osló í gær að sjá geniral rehearsal (síðustu æfinug fyrir forsýningu) í Norsku Óperunni á Forsythe companíinu (sem er frægt kompaní með frægum dansara og danshöfundi í fararbroddi, Willam Forsythe). Ég skemmti mér konunglega að hofra á virkt dans kompaní að dansa og Will sitjandi út í salnum með mér og að sjá hann með berum augum, ótrúlegt. En nóg af því. Það hafði snjóað í Osló deginum áður og enn var snjór hér og þar, ekki mikið.
Svo já það er ekki mikið að gerast annað en að bíða eftir að geta fengið pening úr hraðbankanum. Vonandi gerist það sem fyrst svo ég þurfi nú ekki að koma heim. :$
En ég er farin að elda e-ð gott þar sem það er laugardagur og ég þurfti að vera í skólanum í dag.
sí ja:haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.10.2008 17:30:44 / ragnheidur

Fréttir gærdagsins

Ég er með fréttir að færa. Í gær var afmæli. Afmæli labbarinnar.

S.s. í gær var eitt ár síðan ég braut löppina, víííí 8|

Bara að láta ykkur vita af fréttum sem koma öllum við :haha: Fáið ykkur e-ð gott í dag í tilefni gærdagsins og njótið vel.

Hún átti afmæli í gær hún átti afmæl í gær hún átti afmæli hún löppin hún átti afmæli í gær
Hún var 1 árs í gær hún var 1 árs í gær hún var 1 árs hún löppin hún var 1 árs í gær.

klapp klapp klapp klapp klapp


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.10.2008 21:26:09 / ragnheidur

Minning

Ég vil hér með minnast hennar Ingu minnar sem kvaddi þennan heim í síðustu viku. Ég sakna hennar ákaft og vona að Þórði gangi allt í hagin. Mér þykir leitt að vera ekki á Íslandi þessa stundina og vera viðstödd jarðaför hennar en lífið er ekki alltaf hliðholt manni.

Ég vildi minnast hennar vegna þess að hún var mér svo kær og ég kem mér ekki í að skrifa neitt annað þess stundina. Ég vona að við minnumst hennar öll sem lífglaðri og brosmildir konu og megi guð geyma hana Ingu mína og ykkur öll.

Amen


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.10.2008 22:19:33 / ragnheidur

mikið um rok, úti ekki inni

Hér er enn allt með kyrrum kjörum. Snæbjörn kom á laugardaginn síðastliðinn og við höfum þegar farið í fyrstu innkaupaferðina okkar saman til Svíþjóðar. Það var á miðvikudaginn. Ferðin gekk vel og við rifumst ekki mikið :lol: (djók). Annars er ekki mikið að frétta. Ég er á lífi með bullandi mjólkursykursóþol og bý til brauð tvisvar í viku, klikkað góð uppskrift sem ég bjó mér til. Keypti mér soja mjólk til að tékka hvort ég gæti drukkið hana, og viti menn ég fæ ekki illt í magann af sojamjólk. Reyndar er hún ískyggilega vond en passleg með kornflexi og kaffi ;).
Veðrið hefur ekki verið gott þessa viku. Mikið um rok og rigningu, veturinn nálgast og alltaf er að dimma úti. Hlakka til um helgina, baka brauð og kaupa lampa (við erum bara með kertaljós- ekki gott.)
Góða nótt alle sammen



» 3 hafa sagt sína skoðun

17.10.2008 11:56:59 / ragnheidur

Opinberun

Já ég get sagt það opinskátt núna að líkaminn minn er búin að mynda óþol fyrir mjólkursykri (laktósa). Líkaminn minn nær ekki að brjóta syrkruna niður og það leiðir til magaverkja, ógleði, uppþembu, lofts, prums og pain lot of pain. Svo ég er hætt að borða mjólkurvörur og allskonar drasl sem inniheldur mjólkursykur. Eins og brauð og unnarkjötvörur. Svo beisiklí get ég ekki borðað neitt nema hreint kjöt, grænmeti og ávexti. Nema núna er ég að búa mér til brauð svo ég geti tekið með mér nesti og lifað á því heilan dag.
Ég vona að brauðið verði gott. Ég skellti bara e-u saman sem ég held að ætti að passa í brauð. Jú ég fann nokkrar uppskriftir á netinu en þær voru allar með mjólk svo ég er með hveiti, heilhveiti, sykur, salt, olíu (ekki smjör) og vatn. Sjáum til hvað gerist?

Þokkalegt og góða helgi.8)


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.10.2008 19:31:08 / ragnheidur

It´s a beutifulday

Kalt
Sól
Logn
Litríkt
Fallegt
 
Eru allt orð sem lýsa deginum í dag. Nema það að ég var inni í þessum fallega sólríka, litríka haustdegi, sem er pínu synd.
En kvöldið er enn betra, enn rómantískara. Fullt tungl, heiðskýrt og tuglið lýsir upp jörðina, húsin, bílana, trén og ánna. Það er geggjað að líta út um gluggan núna. Tunglið glampar á ánni, gefur silfraðan gljáa á bæinn.

S.s. ekkert að gerast í dag.....


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.10.2008 20:01:58 / ragnheidur

Fyrirsögn, Já

Ég ætla að byrja á að leiðrétta mistök sem var í síðustu færslu. Ég stein gleymdi að nefna það að háraliturinn sem ég keypi, var keyptur í Álaborg í búð sem heitir Fötex. Vel valin af mér og Birnu frænku minni. 8)

Jæja annar dagur búin og ég var að koma úr sundi. Þol og vöðvar eru fljótir að koma þegar maður byrjar að æfa aftur eftir langt hlé. Svo já ég er að komast upp í 1 km án þes að blása úr nös. Jha segi það nú ekki alveg. Er nú alveg með áreynslu hausverk líka í dag eins og hin skiptin en ekki eins mikinn (það er gott) :haha: Það er gufa í sundinu, ekki jafn gott og heitur pottur en ég er ánægð.
 
Ég var víst búin að gleyma að ég er að fara á óperu í Osló á miðvikudaginn. Ja það er vonandi spennandi því ferðin til Osló kostar sitt.

Eitt heilræði í lokin. Ekki frysta sýrðan rjóma. Hann verður ekki góður við þýðingu. Úff glataður góður gómsætur sýrður rjómi. Hann fer í sósur.

Elskið þið friðinn og strúkið þið svangan kviðinn (kreppu breyting)


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12
Könnun
Hver er ÉG?






Klukkan