Ragnheiður

Hvað er annað en lífið...

26.11.2008 22:57:17 / ragnheidur

Góða nótt.

Lífið heldur áfram þótt ég skrifi ekki reglulega.

Skólinn er alveg á fullu þar sem þetta er næst síðasta vikan svo er ein vika í mat og tal með kennurum (sem er rólegt og þægilegt ;))
Kertið brennur og tala nr 7 á kertinu er horfin eins og planið var :d
Það er nú ekkert mikið að frétta héðan. Er bara nervös að krónan fari í gang aftur og svo erum við er fara í ferðalag á morgun.

Ferðalagið:
Erum að fara með næturlest til Bergen. Þar eyðum við megnið af deginum, förum svo um borð í ferju um 5 leitið út á litla eyju (það er nóg af þeim þar) þar sem Hugrún vínkona mín býr. Ég veit eiginlega ekkert meir og ég hlakka mikið til. Svo á hann Snæbjörn afmæli um helgina það verður spennó. 8) Ég segi ykkur frá því öllu seinna, hann gæti skoðað bloggið áður en við förum og þá veit hann allt. Svo Usssssssss:!:.

Ég er bara mjög þreytt og get ekki beðið eftir að fara að sofa svo ég held að ég láti þetta duga í bili og sendi músarkveðjur og knús heim 17. dagar.

Ragnheidur skrifaði
P.s Hér er sko veturinn komin. Ííííískalt og það meira að segja duttu nokkur snjókorn á jörðina hér á laugardag. Neibb ekkert hvítt enn þá en ég held í vonina. Og já aðalfréttin ég heklaði mér húfu þar sem ég átti ekki neina og hún er geggjað flott. Það sem maður getur gert.
afi skrifaði
já litla krútt,neyðin kennir naktri konu að spinna.Hér er enginn snjór heldur,en fólk farið að setja upp jólaljósin jybbbbí.Hlakka til að sjá þig.kveðja úr Tunguseli

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Könnun
Hver er ÉG?






Klukkan